Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana
til að fá kalíum Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án
sykurs, til að forðast sykursýki.
Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót. Drekka tvo lítra af
vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók
að drekka það.)
Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur
hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar
heilsufarslegar afleiðingar. Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir
hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir
taugakerfið.
Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í
einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir,
nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki
taka eftir því.
Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu.
Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki
gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er ljóst að
það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð. Á eftir
jógúrtinu og trefjunum, tannbursta; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum,
tannbursta. Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum
og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn
hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið,
trefjarnar, tennurnar.
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að
borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það
er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn. Samkvæmt könnunum eyðum við
þremur stundum daglega í sjónvarp…og ekki gleyma tölvunum!!!
En þú hefur engan tíma í svoleiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma
göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður
hálftíminn að klukkustund). Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og
blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú
ferð í frí. Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og
eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og
skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að
öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð.
Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu
kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum
vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í
kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú
gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta
(tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir
þér frá á meðan þú burstar tennurnar. Var ein hendi laus? Hringdu í vinina!!! Og
foreldrana!!! Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að
halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu.
Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir, sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að
vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott
fyrir.
En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri
vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að
gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa
tannburstanum með mér. Ef ég er senda þér þetta í annað sinn, er það vegna þess að
þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer