Right.. við vorum að fagna síðasta venjulega degi ársins 2011, sem annars hefur verið útnefnt fýlu árið mikla.  Það kemur til af vei of mörgum heimatilbúnum vandamálum. Það er vitað (ég fékk skilaboð að ofan) að árið 2012 verður þvílíkt snilldar ár. Herkötturinn er sammála mér, er það ekki?

Ég hef rosalega tilfinningu fyrir árinu 2012. Ég held það verði bara trylltbilað æðislegt, finn að öflin í umheiminum hafa skipt um stöðu.

Fagnaðargjörningurinn er í boði nýja Eiginmanns míns.

Ég veit ekki hvort það er ráðlagt fyrir óvana að gera þetta, en fjörið felst í því að taka tilhlaup utan frá gangi og að rúminu og fleygja sér í það.

Hann er alveg bara á bólakafi í bólinu þarna.

Mér finnst þetta svo fyndið og hló svo mikið að börnin fengu andateppu og tár í augun og Eiginmaðurinn var búinn að slá inn 11 í númerinu 112 til öryggis, svona ef ég væri í alvöru að kafna, eins og hljóðin sem ég gaf frá mér gáfu til kynna. Þau lýsa sér einhvernveginn eins og ef það væri haldið utan um vömbina á önd með annari hendi og utanum hálsinn á sömu önd með hinni, og svo kreist vömbin soldið kröftugt, það kæmi svona skvík hljóð uppúr öndinni, bara örstutt. Enginn andadráttur á milli.. næstum hljóðlaus hlátur með galopinn munn og krampa í öllum öðrum líkamspörtum. Mamma veit hvað þetta er… og gott ef ekki allar systur hennar líka.

Ég tek fram að þessar myndir eru ekki fótósjoppaðar á nokkurn máta, það má sjá og sannast af beltinu sem Eiginmaðurinn er með, sem svo sannarlega vísar þarna upp í loft.. því hann er uppí lofti!

Ég verð bara að segja GLEÐILEGAN NÆST SÍÐASTA VENJULEGA DAG ÁRSINS!