Ég er bara svo ánægð með að geta tekið þær ákvarðanir sem ég þarf að taka, hvort sem það heitir að fá mér tattú á allan handlegginn þó þrítug sé (ég verð aldrei lumma, það er bara þannig), eða að hætta í skóla eða að fylgja hjarta mínu hvert svo sem það vill fara með mig. Ég er ánægð með að vera ég sjálf og hef það gott í eigins skinni.  Ég þekki  svo mikið af dásamlega frábæru fólki sem er alveg eins og ég og ég fæ að vera ég sjálf í kringum það. Elska fólkið mitt og er yfir mig þakklát fyrir það.

Love on you all.