Ég sakna þess að búa til vefi, þá útlitslega séð. Mér finnst reyndar mjög gaman að setja efni inná vefi líka. Mér finnst gaman að pikka inn orð og setja tölur í töflur. Þessvegna er ég ánægð með nýju vinnuna mína.

Ég vil (ég hélt í fleiri ár, eða þar til núna í apríl að maður segði “ég vill”.. með tveimur L-um..) hanna fleiri vefi.

Hef að sjálfsögðu ráð undir rifi hverju varðandi það.

Nú stofna ég útibú Jam Digital á Íslandi. Verið bara í bandi ef ykkur vantar eitthvað. Ég mun setja síðuna upp um leið og sú erlenda er tilbúin. En þið getið samt fengið hjá mér vefi, lógó, hönnun sjónrænna auðkenna og hvað eina sem yður vantar.

Áfram ég!