Þér á Íslandi kann að þykja það undarlegt að ég sé að hugsa um bikní akkúrat núna á þessum merkilegu tímum eldgosa og annarrar ókyrrðar. Ástæðan er jú að sumar er alveg á næsta leiti hér hjá mér. Vömbin á mér er líka á næsta leiti, svo stór er hún. Ég hef hugsað upp margar aðferðir til að gera útaf við hana..og það er ekkert bara hún þið vitið, rass og læri eru líka óþarflega …þrýstin. Það er í fyrsta skipti núna að ég gæti hugsað mér að fara í MRL tíma í ræktinni, sem útleggst Magi Rass og Læri.. og þetta er ekkert djók, ég hef verið svo fullkomin í vexti hingað til að mér hefur fundist það tóm firra að gera rass, læra og magastórar konur vandræðalegar með því að mæta í svona tíma.

En nú er röðin komin að mér.

Ég hef líka hugsað mikið um hvort ég eigi að drekka minna af öli (áfengu meina ég), hvort ég eigi að borða minna af kexi og hvort ég eigi kannski bara að hætta að borða og fara á herba og fleiri drastískar hugmyndir hafa skotið upp kolli. Þær eru ágengastar á kvöldin þegar vömbin viðrðist vera í S-inu sínu og leikur á alls oddi útum víðan völl. Ég lofa sjálfri mér öllu fögru og ætla aldeilis að taka mig á strax í fyrramálið, því ég hef í alvöru alveg villtan áhuga á að vera í bikiníi í sumar.

Allt kemur alltaf fyrir ekki og þó ég mæti kannski í ræktina daginn eftir að hafa fengið svæsið kast yfir því hvernig ég er útlítandi þá kemst ég síðan ekki vegna anna. Og það er ekkert grín, ég er svo mega annasöm að ég hef ekki tíma (og þeir sem mig þekkja vita að ég er með ofnæmi fyrir því þegar fólk röflar stöðugt um að hafa ekki tíma til eins eða annars en hefur samt alveg tíma fattiði..) í alvöru sko, ég hef ekki tíma til að fara líka í ræktina og oftar en ekki þá er ég að vinna á kvöldmat og er þá bara í því að éta hamborgara..já því líkt líf og erfiði.

Ég hef þá hinsvegar tekið ákvörðun um hvernig redda skuli þessum ósköpum. Í bikiní skal ég. Ég ætla að kaupa mér nýtt bikní sem er pottþétt ekki í þeirri stærð þar sem brókin skerst inní mitt óharða mitti eða býr til tvær extra rasskinnar. Nei, bikiní brókin skal vera af hvaða stærð sem er, jafnvel þó við séum að tala um XL , bara hún þrengi hvergi að og töfrabragðið mun vera að klippa síðan miðann úr brókinni og saum annan eins í , nema þar verð ég búin að segtja S fyrir Small og sá miði má sko alveg hanga uppúr.