Áframhaldandi greatness er óumflýanlegur hjá mér, það er spá næstkomandi árs í mínu lífi. Á þessum áramótum líður mér bara frábærlega og í til efni af því kemur hér gjafaóskalistinn:

  • ég óska mér að þér  líði líka frábærlega, í afmælisgjöf.

Ég hef séð að það þýðir ekkert að setja upp langan óskalista, held það rugli fólk bara. Hjólið mitt er amk ennþá (síðan ég var ekki einusinni orðin tala sem inniheldur 3 og eitthvað) standara og bjöllu laust og vantar á það ný haldföng,en ég bætti jú úr því að hnakkurinn var götóttur og ég rassblaut um alla Kaupmannahöfn.

Íhugaði að fá mér nýtt hjól í afmælisgjöf en þá vantar mig féð fyrir því svo ég er að hugsa um að lappa uppá hitt í staðinn og fá mér þá þessa bévítans bjöllu, haldföng og standara.

Góðar stundir allir saman og sérlega ég.