sunneva-blaa-peysan

Þá sagði kóngsdóttirin við drottningu móður sína “ert þú með píku”?

Drottningin svaraði með því að horfa djúpt í augu dótturinnar, þess fullviss að með þessu stutta en áhrifaríka svari myndi hún kenna þeirri yngri að drottningar skammst sín hvorki fyrir það að vera kona né fyrir líkama sinn (..né fyrir að hafa ekki rakað á sér leggina í svo langan tíma að eftir var tekið af arftökum krúnunnar í heitapottinum þar sem spurningin var borin upp)…

JÁ! Ég er með píku! En þú, ert þú ekki líka með píku?

Nei, svaraði dóttirin með bliki í auga sem hún hefur aðeins getað erft frá föður sínum sem sennilega hefur erft það frá föður sínum.

Ég er með lítinn rass að framan.