Mér var því miður fyrirmunað að finna útúr því hvað þetta hekl kallast á íslensku, hafi það íslenskt nafn en block stitch er það uppá ensku. Getur það verið “blokkspor” ?
Uppskriftin
Lykkjur í mynstrinu:
kl = keðjulykkja
ll = loftlykkja
fp = fastapinni (sumstaðar kallað fastalykkja)
st = stuðull
ll-bil = loftlykkju bil
Hekla ll í margfeldinu 3 + 1 þar til óskaðri lengd er náð. Þ.e hekla t.d 10 x 3 ll = 30 + 1 = 31 lykkja.
Upphafsumferð: 3 st ( köllum þetta stuðlaþyrpingu ) í 5. ll frá nál, * sleppa 2 ll, 3 st í næstu ll.* Endurtaka frá * – * út umferðina, enda með 1 st í síðustu ll. Snúa. Skipta um lit.
1. umferð: 1 ll, 1 fp í fyrsta st, 1 fp í bilið milli fyrsta st og næstu stuðlaþyrpingar, * 2 ll, 2 fp í bilið milli næstu stuðlaþyrpingar *, endurtaka frá * – *. Enda á 2 fp í bilið milli síðustu stuðlaþyrpingar og st. Snúa. Skipta um lit.
2. umferð: 3 ll, 3 st í næsta ll-bil út umferðina, enda með 1 st í síðasta fp fyrri umferðar.
Endurtaka umferð 1 og 2.
Ganga frá endum.
Tillaga að kanti: fp allan hringinn, gjarnan 1 fp, 1 ll, 1 fp í hornum.
Skýringarmyndir
Í þessa tusku notaði ég nál nr. 4 og Mandarin Classic bómull, army grænan og ljós bleikan, finnst það koma vel út.
[…] datt niður á þetta hekl spor fyrir skemmstu og finnst það ferlega flott. Aftur, eins og með block stitch, þá er mér fyrirmunað að finna gott íslenskt nafn á það. Það getur hinsvegar vel verið […]