LOFTLYKKJA
Skammstafanir:
- Ísl – Loftlykkja (ll)
- US – Chain (ch)
- UK – Chain (ch)
- DK/NO – Luftmaske (lm)
Loftlykkja er gerð með því að sækja bandið og draga það í gegnum lykkjuna sem fyrir er á nálinni.
Til þess að byrja loftlykkju keðju er búin til lykkja og hún sett uppá heklunálina. Eftir það er bandið sótt og dregið í gegnum hana. Þá er fyrsta lykkjan komin.
Loftlykkju keðja er stundum kölluð loftlykkju umferð og er oft upphafs umferðin í uppskrift. Þegar loftlykkjur eru taldar er fyrsta lykkjan/hnúturinn á nálinni ekki talin með og heldur ekki lykkjan sem er á nálinni. Loftlykkjukeðjan á myndinni er því með 4 loftlykkjur.
Leave A Comment