Ég er bæði Ninja og að æfa þessa stöðu

Eins og mitt nánasta veit þá hef ég stundað óheyrilega mikið yoga núna undanfarna mánuði. Alveg dottin í það. Það er reynadar langt síðan ég datt í yogað.

Ég er liðugri, sterkari, opnari og skemmtilegri. Rólegri, fallegri (þú veist.. hver hélt að það væri hægt) og líður milljón sinnum betur, sérlega eftir að ég byrjaði að fara í yoga á sirka hverjum degi, eða alltaf þegar ég kemst. Og marga aðra kosti verð ég að draga fram, eins og t.d betri meltingu og  hve miklu meðvitaðri ég er yfir höfuð, svona í hversdeginum.

Eitt af góðu áhrifunum sem hafa komið fram eftir allt þetta yoga er hvernig húðin mín hefur breyst. Þá ber auðvitað helst að nefna að ég er komin með svo mjúkan rass, að það er engu líkara en ég hafi hreynlega skipti við eitt af mínum börnum.

Hæ, ég heiti Skrítin og er með barnsrass í brókinni.