Ég hef oft farið útí hina samkynhneigðu nágranna mína sem aldrei draga fyrir hjá sér.. .ekki frekar en ósamkynhneigða parið sem heldur ekki dregur fyrir  hjá sér og sveiflar líkamanum í gluggunum hjá sér svo ekki verður annað hægt en að missa útúr sér já eða oní sig matinn…. hér á síðunni.

Hinir elskulegu vinir hinum meginn við garðinn voru svo innilegir og fallegir í gærkvöldi við að elda sér matinn að ég bara gat ekki hætt að stara yfir og fann að ég öfundaði þá. Ekki af því að þeir eru tveir karlar saman og ég er pía heldur því þeir voru svo glaðir og sætir hvorn við annan.

Já, ég hin öfundsjúka boðaði fund í Litavinafélaginu og saman horfðum við yfir á pörin elskulegu og fylgdumst með. Það sést það vel yfir að við sáum að þeir voru síðan að búa sér til búst í blandaranum sem var fjólublátt á litinn, örugglega bláberja eða eitthvað slíkt.