Já, mér áskotnaðist sá heiður að eiga nöfnu í Gröf sem er tilbúin til að spreða tíma sínum í mig..myndi segja “spreða tíma sínum í mig..hina aumu sál” (sagt með væluvorkennistón) en þar sem ég veit að ég er ekkert aum þá verð ég náttúrulega að segja að hún sé til í að spreða tíma sínum í svo verðugt verkefni eins og að þjóna mér (hinni dásamlegu) með myndir af mÖmmu Lóu. Þær pósta ég að sjálfsögðu í tilefni af því að mAmma Lóa fagnar jú afmælisdegi í dag. Það eru að sjálfsögðu ekki bara við hér í Köbbben sem fögnum þessum áfanga heldur hefur svoleiðis fólk safnast saman í miðju Reykjavíkur til að fagna afmælinu hennar mÖmmu Lóu. Meira að segja Páll Óskar söng kærleiks söng og það komu rútur með veifandi mönnum og æstur múgurinn féll næstum í yfirlið.. Á myndinni að ofan eru mAmma Lóa og Guðmundur Bróðir á jólunum að ég vænti á Auðunnarstöðum.
Loa&Gudm á gamal Blakk
Þarna eru þau systkin á gamla Blakk, það sést að vísu ekkert mikið í mÖmmu og mér verður spurn hvað séu eiginlega mörg ár á milli hennar og Guðmundar Bróður?
Lóa gelgja
Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að mAmma Lóa hafi líka verið unglingur í eina tíð. Mér finnst frábært hvað Þorvaldur er stundum líkur henni. Stundum er það alveg lygilegt.
Lóa1
Sjáiði hvað kjóllinn sem hún er í er flottur og þetta er tekið í Júlí 1964. Ég veit líka alveg hvernig Sindri verður þegar hann verður eldri, þá í framan.
Lóa2

Og þarna er Dúkka með. Þessi dúkka er ennþá til og hafa mín börn leikið sér að henni í mörgum af þeim dásamlegu ferðum sem við höfum farið og þau ein með mÖmmu Lóu útá Auðunnarstaði.

Við óskum þér, mAmma Lóa svo mikið til hamingju með daginn. Söknum þín alveg ótrúlega mikið, það er alveg annanhvern dag sem Sindri segir , Ha amma??? og þá segi ég “á Íslandi” og þá segir hann…neeeee, amma kooooma.

Afæmlis og lukkukveðjur héðan.