Eins og ALLIR hljóta að vita þá er dagur gullsmiðsins í dag. Já, og í auglýsingunum sem lesnar hafa verið svona þúsundsinnum síðasta klukkutímann þá eru apparentlí allir með sinn eigin gullsmið.

Mikið er ég glöð og fegin og já bara yfirhöfuð þakklát fyrir að getað spottað þegar það er verið að reyna að troða því inn hjá fólki að það verði að hafa eitthvað eins og sinn eigi gullsmið, til að geta fundist alltí lagi að vera til.

Auðvitað er þetta markaðsprettur (prettur..pretta.. undarlegt orð) sem er til þess gerður að afla gullsmiðum frekari viðskipta. Eins og þegar okkur er sagt af mjúkmæltum þuli í Special K auglýsingu á meðan við horfum á mjóa kvenveru dansa léttstíga um tandurhreina íbúðina að með því að borða þennan óskapnað sem Special K er, verðum við fullkomin og í rauðum kjól.