Hér er nú svo heitt að ég á alveg eins von á því að ég muni heyra lömb jarma og sjá litla andarunga rölta sér í bað á eftir mömmu sinni hér innan skamms. 11 stiga hiti var það heillin í Kóngsins í dag. Það er samt ekki heitt, heitt, það er alveg úlpuveður, en það þarf ekki að vera með húfu né vettlinga, nema fólk vilji auðvitað.

Ég er búin að ætla mér að gera alla þá hluti sem mér finnst vera skemmtilegir, eiginlega allt sem felur í sér að sitja við borð og gera eitthvað með höndunum en allur tími fer í að taka til. Mikið lifandis ósköp er leiðinlegt að taka til. Þetta er eiginlega samt vont eða verra ástand. Það er vont að þurfa að arka um íbúðina, svo kílómetrum skiptir og tína upp dót, ryksuga og skúra og allt þetta, en það er eiginlega verra að slaka á í íbúð sem lyktar af óþrifnaði og enginn finnur ekki neitt því það á eftir að ganga frá því.

Ef ég vissi ekki að ég mun aldrei getað sofnað í kvöld ef ég legg mig núna kl. 18:40, þá myndir ég fá mér eina litla kríu.

Eins gott að ég þarf ekki að fara í fleiri búðir í dag.