Vaknaðu hress og endurnærður. Vænstu hins besta frá þessum dýrðlega degi því einungis mað því ertu mótteækilegur fyrir það besta. Slakaðu á að leyfðu Mér að taka við . Byrjaðu aldrei daginn hlaðinn spennu og altekinn streitu. Sofðu og hvíldu þig til að endurnæra Andann.  Farðu réttu megin fram úr  með hjartað fullt af kærleika og þakklæti, fullur eftirvæntingar gagnvart nýjum degi. Dagurinn í dag byrjar flekklaus. Því ekki að hafa hann þannig?  Haltu vitund þinni upplyfri í átt itl hins æðsta og sjáðu það dásamlegasta koma í ljós þennan dag. Þetta er nýr dagur á nýjan hátt. Láttu daginn í gær vera liðinn með öllum sínum göllum og mistökum. Flettu yfir á nýja blaðsíðu. Hversvegna  draga það gamla á eftir sér inn í nýjan dag? Lærðu fyrir alla  muni lexíur þínar. En hugsaðu samt ekki svo mikið um þær að þú verðir niðurdreginn og getir ekki tekið á móti hinu nýja  með ljós og gleði í hjarta. (Helen Caddy)