Ég svitna bara, þetta er í beinu framhaldi af ræðunni um brauðið og hvernig það er verið að taka mann í þurrt í búðinni.

Mér finnst þetta bara rangt og eiginlega bara skelfilegt. Skelfileg meðferð og mjög langt frá því að vera það sem maður hugsar þegar maður kaupir kjúklingabringur og hakk. Reyndar, í mínum huga, er ég með það algjörlega aðskilið að hakkið í bakkanum og kjúklingbringurnar voru lifandi dýr einusinni. Kannski því ef ég myndi gera það þá myndi ég ekki geta keypt þessar vörur.

Sorglegt. Ég er reið yfir þessu en ekki brjáluð eins og um daginn, ég er bara svona.. svikin. Ótrúleg svikamylla.

Hvar er grænmetisbúgarðurinn minn?