image

Alveg fullt af snjó hérna.  Hugsaði um að fara með Bjútíbínu út að labba í vagninum en nennti því svo ekki og dró fram ferninga sem ég hafði heklað í hin ýmsu verkefni sem ekkert varð úr og aðra bara til að prufa og hófst handa við að hekla þá saman.. hélt ég að það tæki bara 10 mínútur? Já. Nú liggur þetta allstaðar á gólfinu. Ojoj.

Listinn í dag.

  • Ég er svo þakklát fyrir allt garnið sem ég á
  • Ég er svo þakklát fyrir að vera orðin svona zen með að hafa drasl í kringum mig og þó ég sé með flutningaljótuna á háu stigi þá er ég ekkert rosalega pirruð, bara smá
  • Ég er svo þakklát fyrir að við erum upp til hópa hress
  • Ég er svo þakklát fyrir snjóinn því þá er dagurinn ekki eins dimmur
  • Ég er svo þakklát fyrir að Toblerone var framleitt