Börn hafa eitthvað svo fallegan skilning á lífinu, alveg án þess að það sé verið að mata þau af því, það þarf ekkert alltaf.

Hér rétt í þessu var mér tilkynnt af Örverpinu fagra að hann hefði endalaust líf. Því ef hann deyr þá breytist hann bara í eitthvað annað, flugu, aðra manneskju eða hund eða eitthvað. Því hann hefði jú endalaust líf.
image

Að mínu viti er sálin ódauðleg og þessvegna er þetta hárrétt hjá honum.

Listinn síðan í gær, gleymdi að setja hann inn:

  • Ég er svo þakklát fyrir að það voru ekki pöddur inni í skordýra bitinu sem ég fékk á vísifingurinn um daginn.  Það er næst næsti bær við að vera  minn versti ótti.
  • Ég er svo þakklát fyrir að frk. Bjútíbína svaf lengi í gærkvöldi, ég..já eða geðstirðan þurfti alveg á því að halda
  • Ég er svo þakklát fyrir að það er ekki frost heldur er allur snjórinn að fara
  • Ég er svo þakklát fyrir að við kenndum úngviðinu Rommí, nú getum við spilað eitthvað annað en endalausan Ólsen Ólsen
  • Ég er þakklát fyrir að vera að flytja aftur út, ég hlakka til þess.