Í 34 ár og um það bil 6 mánuði, eða síðan ég man eftir mér og þar til nú fyrir stuttu, hef ég verið að berjast og þá meina ég sko berjast, við að tilheyra. Tilheyra bara einhverju. Ég hef prufað að tilheyra vinkonum, strákavinum, áhugamálum, bæjarfélögum, kærustum, veraldlegum eigum, því að vera í sambandi, því að vera ekki í sambandi, mismunandi þjóðfélagshópum og mismunandi atvinnu. Spurningin  “hver er ég?” ásótti mig.

Ég gjörsamelga gefst upp og gef hér með út þá yfirlýsingu að ég tilheyri sjálfri mér.