19 vikur í hús og ég hef ekki viljað liggja á köldum flísunum inná baði i heila viku eða rétt rúmlega það.

Í staðinn hef ég breyst í gamalmenni sem verður að setjast á stól til að setja sig í skóna.

image

Ég kvarta ekki allan daginn, bara svo þú vitir! Við fórum í sónar skoðun og allt lítur vel út, mér er mjög létt að sjálfsögðu. Kom einnig í ljós að ég hafði kolrangt fyrir mér og þarf núna að borða hattinn minn. Við eigum von á stelpu en ekki strák! Ég sem hafði byrjað að
kaupa blátt garn í eitthvað (já lögsækið mig bara fyrir kynjamisrétti).

Við erum að sjálfsögðu ánægð með að fá aðra stelpu í safnið og hún segir hæ :-)

image