TILVILJANIR

Þetta skrifaði ég í júní á þessu ári og var þá ekki viss hvort ég héldi að tilviljanir væru til.

 

“Oft er ég viss um að ég hafi vitað eitthvað sem myndi gerast. Eins og ég væri skyggn. Ég hafi fundið það á mér.

En núna, þegar mér er orðið ljóst að það er ég sem skapa allt það sem gerist í mínu lífi, þá er augljóst að ég vissi hvað myndi gerast.

Ekkert af því hefði átt að koma mér á óvart og ég er sannarlega ekki skyggn þó ég sé frekar næm. Það er eiginlega verra, ég væri ótrúlega sérstök og kúl ef ég væri skyggn.

Tilviljanir?.. ég veit það ekki. Ekki í samræmi við þá staðreynd að ég skapa allt í eigin lífi.

Hvernig allt sem kemur fyrir í mínu lífi, sem hefur líka með aðrar manneskjur, sem mér koma við, að gera… hvernig það  tvinnast svo saman við það sem aðrir eru að skapa og snerta mitt líf, er ég ekki búin að koma hugsun yfir ennþá.”

 

Ég hef nú komist að annarri niðurstöðu.

Í fullkomnu samhengi við það sem ég sagði í júní, þá get ég nú upplýst að tilviljanir eru til.

Ef við skoðum dæmið, sem hjá mér hljómar þannig að ég skapa allt sem gerist í mínu lífi og þessvegna er augljóst að ég viti hvað er að fara að gerast. Ég er semsagt ekki skyggn eða með yfirnáttúrulegakrafta (búhú).

Svo ef við skoðum þetta með að vilja til sín það sem maður vill að sé í kringum sig, svona sirka eins og eftir lögmálum The Secret sem er bara enn ein útskýringin á því hvernig þetta virkar í Alheiminum, það er bara af hinu góða að það séu margar útskýringar á því. Þá sjáum við að tilviljanir eru svo sannarlega til. Þær eru einmitt allt sem við viljum til okkar.. til-viljun, vilja-til.

Þannig að tilviljun er ekki eitthvað sem var eitthvað rosalegt súplæs, heldur eitthvað sem er akkúrat andstæðan, eða eitthvað sem við vissum og máttum búast við.

Tilviljun er þannig ekki bara eitthvað sem gerist óvart, heldur meðvitað framtíðarval þeirra sem búa á Jörðinni.

Ég mun hér eftir leggja til að orðið tilviljun verði útskýrt svona í orðabókinni:

Tilviljun: að vilja til sín.

DU ER BEDSTE MOR I HELE VERDEN

Það er til heil vefsíða bara tileinkuð brauði. Það er aldeilis.

Annars þá nenni ég ekki að pósta því alltaf á facebook að ég hafi bloggað. Ég vil bara að fólk kíki hingað inn sjálfkrafa, án þess að ég sé að flagga því eitthvað. Hehe. Ég neita að mata sundurleitan lesendahóp minn á því sem ég hef að segja. Verð samt náttúrulega að pósta þessum pósti á Facebook, ég vil ekki að fólk missi af öllum þeim  fróðleik sem vellur útum eyrun á mér. Og það geri ég af væntumþykju einni saman, ekki af því að ég er athyglissjúkur penni.

Sem er reyndar svo margt, þá það sem ég hef að segja. T.d eins og að þegar erfingjar krúnunnar höfðu lagt sín fallegu höfuð á koddann í gær,  þá fékk ég skilaboð. Skilaboðin bárust úr herberginu við hliðina á stofunni. Þar á Sprengjan heima. Hún var að bjástra eitthvað með símann sinn og sendi mér SMS. Í því stóð: du er bedste mor i hele verden.

Ég mun fara fullkomnuð í gröfina.

 

 

ÉG VEIT ÞAÐ EKKI..

Ég elska internetið, bara svona ef það er ekki ljóst. Ég elska það svo mikið að ég á erfitt með að ímynda mér lífið án þess. Ég tel það enga synd að skoða það oft og mikið. Kannski er ég búin að segja þetta. Maður rekst bara á svo marga hluti á því. Marga kúl, aðra eitthvað minna kúl.  Eins og þessi:

Ég er ekki viss. Mér finnst flott þegar fólk tattúar svona tribute til barnanna sinna á sig, finnst persónulega ekkert að því. kannski er það meira að þessi gæti notað haldara alveg númer B eða eitthvað, sem fer í taugarnar á mér.

BREYTTIST YFIR NÓTT

Ég breyttist yfir eina nótt í prjónafrík. Ég meinaða. Ég er öll að breytast. Breytist reyndar svo oft að fólk fer að hlægja að mér þegar ég segist ætla að fara að gera eitthvað nýtt. Nú veit ég ekki hvort það er kostur eða galli, en ég vil meina að það sé frekar kostur. Ég ætla ekki að nota alla póstana til að tíunda ókosti mína.

Mig hefur alltaf langað að vera fræg. Ég er að hugsa um að brjótast inná prjónabloggvöllinn og rústa honum!!

Mig langar í þessa bók þarna.

AFMÆLI NÁLGAST, ALLIR Í VIÐBRAGÐSSTÖÐU.

Afmælisgjafalisti Sprengjunnar fyrir 9 ára afmælið hljóðar svona:

  • Föt
  • Skó
  • Pennaveski og blýantar. Pennaveski eins og sjá má hér, svona með bare rennilás ofaná er rétta gerðin en ekki þessi týpa hér.
  • Bangsi (stafað bensi)
  • Sylvenien (ég veit ekki hvað það er eða hvort það er skrifað svona)
  • Stelpu babyborn
  • Föt fyrir Baby born
  • Hluti í playmo húsið (það er búið að safna fyrir og kaupa.. og fá í gjafir nokkur herbergi í húsið)
  • Nýja klukku. (Það gæti eða gæti ekki hafa verið sjálfri Bústýru að kenna að klukkan er horfin.. kannski, kannski ekki í ruslið.)
  • Dúkkukerrru (stafað: búkukeru)
  • Pening