” Mamma, ertu búin að prufa að skanna á þér rassinn í prentaranum?” sagði eitt barnanna við mig í dag og var ekki að gera grín.

Förum yfir þetta aðeins.

Mamma, ertu búin að prufa að skanna á þér rassinn í prentaranum? Mamma, ertu búin að prufa að skanna á þér rassinn í prentaranum?

Prentarinn minn er prentari, skanni og ljósritunarvél. Mér finnst það til merkis um nýja tíma að ég var spurð hvort ég væri búin að prufa að skanna á mér rassinn en ekki ljósrita hann.

… hvað ég gæti nú ekki gert við afrit af mínum fagra afturenda á digital formi…