2014-09-14 14.49.07

Sést þessi íkorni? Ég fór í tvo garða uppá Frederiksberg með Maríu vinkonu (hæ María! ). Þar sáum við meðal annars þennan íkorna, hann er að rogast með hnetu. Hversu sætt er það?!? Síðar sátum við á bekk og sáum annan, nema það hafi verið sá sami, engin leið fyrir mig að vita það, fara tvær ferðir með svona pínulítil epli.

2014-09-23 14.09.38

Ég er bara svo glöð og ánægð að geta haft svona fyrir augunum. Mér finnst þetta svo fallegt og kannski er furðulegt að segja það en ég færist bara inní eitthvað annað þegar ég er nálægt trjám, fer bara inná einhverja aðra bylgjulengd.2014-09-23 14.16.28

Var að koma úr spilatíma þegar ég hitti þessa fyrir á labbinu. Hún hafði gengið frá húsinu okkar og að næsta húsi, svakalegur leiðangur alveg hreint.2014-09-23 14.19.41

Fórum yfir brú á hjóli. Einsgott að það er einhver að halda í hana! Og þarna er þá hjólið mitt. Ég er búin að fá á það körfu og loksins er það alvöru. Sniðug karfa sko, get tekið hana af og haft fyrir innkaupakörfu. Verð eiginlega að fara eitthvað og versla í hana, bara til að prufa það.