Halló súkkulaði, heil 500 grömm á dag! Ég á aldrei eftir að geta bloggað aftur, hef farið svo hjá mér yfir allri athyglinni sem ég hef fengið hér undanfarna daga.

Eru mínar 15 mínútur af frægð þá búnar?

Djók. Ég borðaði bara  200 grömm og eftir að ég hef dottið af háa hestinum sem ég sit á núna og veifa niður á lýðinn sem upp til mín lítur þá mun ég skrifa og skrifa og skrifa. Reikna með að detta af hestinum þá og þegar, hann er svo ódæll og riðar til og frá. Hann er kannski með riðu.