rigningArna

 

Það er búið að vera rigning svolítið. Það er bara slæmt að einu leiti, en það er að það verður svo fjári dimmt inni hjá mér. Ég er búin að ákveða að kaupa loftljós. Meira að segja búin að finna mér eitt í eldhússvæðið. Það er rautt.

Djöfull er pirrandi þegar dagarnir þjóta framhjá og ég næ ekki að afreka neitt meistaraverk. Úff. Djöfull er líka pirrandi þegar sú staðreynd að ég kann ekki að setja á mig naglalakk er að stoppa mig í að taka upp kennsluvidjó þar sem þarf að sjást í hendurnar á mér. Þarf ég þá fyrst að eyða svaka tíma í að æfa naglalökkun? Afhverju er ég ekki bara með ekkert naglalakk? Af sömu ástæðu og að ég fór út án þess að taka eftir því í hvað ég var klædd, sem var þetta hér fyrir neðan. Tók eftir þessu þegar ég var þegar komin of langt frá heimili mínu til að geta snúið til baka og farið í eitthvað annað meira smart… ég er lúði.

ludiOhh! Þessi dagur er að fara í ekki neitt hjá mér. Ég ætla hinsvegar að opna búðina mína á morgun eða hinn! Júbí.