Hefur mér mistekist í uppeldishlutverkinu ef ég á barn sem er ekki með sterka sjálfsmynd?

Þitt svar er sjálfsagt nei, það er ekki þér að kenna! Og mitt svar til þeirra sem ég þekki, sem myndu spyrja mig að því sama myndi líka vera nei, það er ekki þín sök.

En ef þú spyrð sjálfa/n þig að þessu, er þá svarið ennþá nei, það er ekki þín sök?

Eða leynist undir yfirborðinu svarið JÁ! Þetta er allt mér að kenna.