Langar mig meira á kvöldin heldur en á daginn?

Mig langar alveg svakalega til að blogga meira og setja inn allar myndirnar sem ég tek. Það er svo tímafrekt að vera heimavinnandi húsmóðir að ég hafði ekki tíma til að fara í sturtu fyrr en eiginmaðurinn komheim og gat tekið Bjútíbínu af örmum mínum.

Ég þurfti að þvo á mér hárið, ég get ekki tekið hana með bara í sturtu ef ég þarf að þvo á mér hárið.

Langar að ég hafi meiri orku nú 16 tímum eftir að ég fór á fætur svo ég geti sinnt hinu og þessu sem ég þarf a sinna þegar allir eru sofandi nema ég.

En þar sem ég get varla meira fyrir daginn (gleymum því ekki að ég er ekki tvítug ennþá og heldur betur komin með gráa slikju yfir hárið) í dag þá verð ég að játa mig sigraða og fara að sofa.

Lengi lifi yfirþyrmandi mikið af verkefnum sem þarf að gera hjá þeirri sem er “bara” húsmóðir.

Ég mun setja inn myndir, bara um leið og færi gefst.

Ást í kotið.