logo

Krakkar mínir. Ég er búin að opna prjóna og hekl blogg sem er á slóðinni www.fjarhusidgarnverslun.is. Það var að koma úr ofninum!

Þetta er fyrsti hluti af því að ég opna garnbúðina mína. Hún mun opna, að ég reikna með bara innan nokkurra daga. Nokkrir tæknilegir hlutir sem ég verð að ganga frá fyrst. Hún verður  á slóðinni www.fjarhusidyarnstore.com. Þetta verður með óhefðbundnu sniði, enda er ég svo óhefðbundin.

Ég bjó til fésbókarsíðu sem ég gæti alveg hugsað mér að fá nokkur like á, en bara sko ef þú nennir að fylgjast með svona prjóna og hekl dúdderíi.

Ég er glöð :)