Ég er nú svo þýð í samskiptum og geri allt til að þóknast fólki. Hér er því myndablogg :) Ég myndi síðan örugglega taka rosalega mikið af myndum til að minnast þessarar Einveru sem stendur yfir í höfuðstöðvum Félagsbúsins síðar…en hr. Bóndi hefur tekið öll minniskortin með sér í sveitina á Íslandi, nema hugsanlega eitt sem finnst hvergi.
Þóknast fólki
About the Author: Kristin Guðmunds
Ég get ómögulega ábyrgst að þú ekki farir að gráta því þú hefur fengið svo mikinn aulahroll. Ég get heldur ekki ábyrgst að þú móðgist ekki eða pissir í buxurnar af hneykslan. .. ég ætla að skrifa flestum stundum bara það sem mér er hugleikið þá stundina. Ég hef síðan tröllatrú á því að fólk hafi rétt á, og geri það reyndar ótt og títt, að skipta um skoðun.
Sem eitthvað nýtt (frá janúar 2016) þá eru hér inni á síðunni hekl og prjónaleiðbeiningar sem fyrst voru á síðu sem tengdist garnverslun sem ég rak.
Mikið gaman að skoða þessar myndir og rifja upp góðar stundir með ykkur :) Það er ósköp tómlegt í ömmubæ núna þegar þau eru bæði farin.Sakna ykkar allra.
Vona svo að allur gróðurinn vaxi og dafni,kannan góða gerir án efa mikið gagn :) Ber á einhverju sem gæti orðið að graskeri með tímanum ???
Ástarkveðja.
Lóa.
Takk fyrir sendinguna, nú þegar búin að koma sér vel…. varúð EKKI snerta flugnaspaðan um leið og ýtt er á takkann…… ég varð að prófa, dísús hvað maður getur verið mikill bjáni stundum……
kveðja
Sæa
Æðislega myndir!! Hér er verið að baksa við að fá ÁIH og SEÞ til að sofna í sama herbergi… En á “það verður ekki betra”-myndinni, segja svipirnir allt sem segja þarf en hvar bóndinn er að klóra sér skal ég ekki segja til um ;)
Eitt er alveg víst Kristín mín að hlýðin ertu! Þökkum foreldrum þínum fyrir það.
Það er bara eins og maður sé hjá ykkur að skoða þessar frábæru myndir.
Kveðjur í einveruna í höfuðstöðvunum