.. er að þurfa alltí einu að elda kannski 4-5 sinnum í viku. Jakk. Mér finnst svo ótrúlega boring að elda. Úff. En vegna þess hvernig vinnutími Eiginmannsins verður þá mun ég neyðast til að bæði elda OG koma börnum í rúmið alveg bara 4-5 daga í viku.

Tvennt af því sem mér þykir hvað leiðinlegast í heimi.

Vakna klukkan 06:00 eða fyrr þó ég hafi farið að sofa klukkan hálftíma fyrr, þvo þvottafjöll á við Everest á hverjum degi, hengja upp og brjóta saman, þrífa allt frá toppi til táar, kaupa inn, gera matarinnkaupalista, sjá um heimilisbókhaldið, skrúbba piss undan klósettinu, hringja allt sem þarf að hringja, muna eftir öllu og mæta allt get ég vel hugsað mér.. en að elda og koma lýðnum í ból.. hrollur.