AÐ KOMA HEIM

Það er spes tilfinning að koma heim eftir veru í öðru landi. Augljóst er að við sjáum hér allt í öðru ljósi. Þið vitið, kunnum að meta það sem við kunnum ekki að meta áður. Kunnum ekki að meta það sem við kunnum að meta áður.

Nú, ekki er Kaupmannahöfn stór borg. Hún kann að vera talin til stórborgar, en hún er ekki stór þrátt fyrir það. Maður nær eiginlega enda á milli allstaðar. En þegar það eina sem ég er vön að sjá eru fjörgamlar byggingar í allt öðrum stíl en í mínu heimalandi, þá fæ ég eiginlega sömu tilfinningu eins og þegar maður fer útá land á Íslandi þegar ég lít yfir Reykjavík.

Reykjavík lítur út eins og vel útitekið fiskipláss miðað við Kaupmannahöfn. Ekki að það sé eitthvað úldið að vera hér, hehe, svo sannarlega ekki. Mér finnst það sjást vel á þessari mynd. Gæti grafið upp samanburðarmynd, en ég nenni því ekki.

Hér í Reykjavík er verið að gera helling til að koma fólki á hjólið. Þetta, mjórri línan, er hjólagata á Suðurlandsbrautinni. Svo mjó að það er bara pláss fyrir eitt hjól í aðra áttina. S.s ekki gert ráð fyrir að fólk hjóli saman, eða mætist á leiðinni. Hvað um það. Ég ætla bara að eiga þessa mynd þegar kemur að því að hér verði almennileg hjólaumferð. Mér skilst að hér eigi að leggja 10km á ári næstu þrjú árin í hjólastíga.

Hjóla meðal annars í gegnum Laugardalinn á leið til og frá vinnu. Ég held að það eigi eftir að verða ótrúlega fallegt í sumar. Hlakka til.

Helst er að frétta að allt mjakast. Búnglingur og Sprengja byrjuðu í skólanum í dag og voru yfir sig ánægð. Búnglingur hefur þó pantað að hringja í vin sinn úti á morgun. Saknar ábyggilega.

Örverpið, sem og hin eldri, er löngu orðinn leiður á leikskólaleysinu og sagði áðan að hann hefði síðan aldrei fengið að sjá nýja sandkassann sem verið var að gera á leikskólanum hans úti… hann spurði hvort við gætum ekki bara flyttað úðð til danmaggrrgk igeNN?

Hann byrjar samt á nýja leikskólanum í næstu viku. Fer í heimsókn á föstudaginn. Svona gerast bara hlutirnir á einum degi stundum. Gotterí.

FERÐ Á HVAMMSTANGA STRÖND

Ég og skórnir mínir fórum út að ganga í fyrrakvöld. Svo kallaðan Merkurhring, sem allir vita hvað er, sem búa á Hvammstanga, en þar erum við einmitt búin að halda okkur síðan á miðvikudagskvöldið síðasta.

Ég reif að sjálsögðu myndavélina með í þetta geim, en þegar ég ætlaði að festa á filmu fallega kvöldlagið (það var ekki sól) þá kom í ljós að ég hafði gleymt minniskoritnu í tölvunni heima og var bara með eitt 16 megabita kort sem er 8 ára gamalt. Skemmst er frá því að segja að það var ein mynd á kortinu og vélin tjáði mér að það væri ekki pláss fyrir fleiri…

Merkurhringurinn er að ég held um það bil 3km og heitir Merkurhringurinn útaf bænum Mörk sem við hann stendur. Sumir kalla hann litla Vatnsneshringinn. Ég s.s þrammaði hringinn og áði (því ég er búin að vera að gera krossgátur) á móts við hesthúsin sem á leiðinni eru.

Svo fórum við á ströndina. JÁ! Ströndina. Ég er strax  komin með leið á yfirlýsingum á facebook frá Danmerkur búandi vinum mínum um hvað það sé alveg bara 20 stiga hiti, of heitt til að vera í fleiri fötum en stuttermabol og myndir af börnum að leik á sundfötunum á ströndinni í glampandi sólarljósinu. (Abbó ehf).

Þannig að nú mun ég  birta hér myndir af okkur á ströndinni hér fyrir neðan Hvammstanga. Á Hvammstanga Strönd. Búnglingurinn var fyrst ekki viss hvort honum ætti að finnast þetta vera vert þess að njóta. Fyrstu skrefin niður á strönd voru eiginlega tekin í fýlu. En svo komum við niðureftir og ég var búin að ota að honum neðri kjálka af einhverjum óheppnum fisk, að hann gleymdi sér og gleðin við að vera á ströndinni braust út. Hann gekk þarna um eins og fornleifafræðingur sem gerði hvern merkilega fundinn á fætur öðrum. Tróð því öllu í poka og lagði stoltur á pappír á gólfið hjá Ömmu L.

Sprengjan var sprengja og má sjá hana í fjarska á myndinni fyrir ofan.. langt á undan öllum hinum.

Víkingarnir mínir.

Bóndinn á kletti sínum.

Ég var þarna líka. Búnglingurinn að kemba fjöruna fyrir beinum úr hvaða skepnu sem er, fyrir aftan mig.

Hér er þá myndin af eitthvað af mínum börnum sem eru að leika sér á ströndinni böðuð í sólargeislum. Eini munurinn er að þau eru kappklædd.

 

SKAPAHÁR

Er búin að fara svo oft í sund eftir að ég kom að ég hef séð, þar af leiðandi, gargandi margar píkur. Allskonar píkur. Litlar píkur, stórar píkur, sætar píkur, síðar píkur, faldar píkur og svo hina sívinsælu rökuðu píku. Svo sem ekkert nýtt af nálinni að kvenfólk stundi kynfæra rakstur.

Mismunandi auðvitað  hversu rakað liðið er.  Sumar með brúsk niðrá hné, bæði að framan og aftan. Aðrar með smekklega snyrt svo hárin við bikiní línuna fái ekki innilokunarkennd á sundbolslínunni og geri hvað þau geta til að sprikla um í lausu lofti.. fyrir utan bolinn. Og svo auðvitað þessar sem eru bara með rönd, mis breiða. Þá þær sem eru ekki alveg nógu öruggar með sköfuna og hafa rakað allt af henni nema það lafir alveg 5 cm langt neðan úr.. s.s neðan úr píkunni, eða lítur eiginlega út fyrir að vera innan úr henni, óþægilegt að raka þar kannski.. og festist svona smekklega á milli læranna efst, sé gefið að hún sé með frekar þykk læri.

Svo hafa sumar farið í það sem heitir brasilískt og eru eins og ókynþroska að neðan.

Eina svoleiðis sá ég í sundi í dag og átti fjári bágt með mig þegar hún sneri sér við til að skola sig að framan. Þar blasti nefnilega við mér afturendinn á henni en hann var kafloðinn! Hún var með dágóðan dúsk ofan við rassaskoru og svo sprellaði hárið svona skemmtilega á milli rassakinnanna.

Ókynþroska að framan, en karlmaður að aftan. Þetta meikar bara ekki sens í mínum haus.

 

VORIÐ ER KOMIÐ

Vorið er alveg komið hér á Íslandi. Ég get ekki séð betur en að gras sé byrjað að spretta, og lauf að gæjast fram á trjánum. Amk á þessu tré sem ég fann á ferðum mínum um bæinn. Lyktin ber þess líka merki. Hún er himnesk. Hefurðu fundið hana? Veðrið virðist bara hafa misskilið þetta eitthvað..haha, það var bylur í smástund hér í gær.

Notaði tímann meðan lýðurinn var fyrir norðan og ég í bænum að hjóla hér um, ennþá á risastóra hjólinu. Það er sko vel hægt. Reyndar hef ég sálgreint Íslendinginn þannig að hann sé haldinn fatamerkjaframkvæmdarkvíða. Sem lýsir sér svona:

*Ef maður á ekki fjallahjól með þúsund gírum og hjólreiðagalla af bestu gerð, þá getur margur ekki hjólað. Staðreyndin er sú að það er VEL hægt að hjóla hér. Að vísu er það eins og að vera búinn að nota nútíma internet tengingu í 4 ár en þurfa svo að skipta yfir í að tengja með símalínu. En þruglið um að ekki sé hægt að hjóla hér og allir gefist uppá því er þvættingur. Í vinnunni er meira að segja hjólaskýli fyrir þá sem hjóla í vinnuna.. eða svo var mér sagt.

*Ef maður á ekki göngu föt frá Cintamani, sem samanstanda af neon bleikri eða appelsínugulri (á við kvenfólk) neofreon(eða hvað það heitir..) peysu, sem hefur verið, ég veit ekki..þróuð í samvinnu við eskimóa á versta stað í eskimóalandi, og svörtum leggings sem ábyggilega eru svipaðar hjólreiðabuxunum, ég hef bara ekki haft geð á að vinda mér upp að einni göngupíunni og tékka á því. S.s ef maður á ekki svartar leggings og æpandi litaða Cintamani peysu ásamt strigaskóm frá Nike, Puma eða Adidas, já og eyrnaband, þá getur margur ekki farið í göngu.

*Sama gildir um þá sem ætla í útilegu. Ef topp græjur og trylltur jeppi, eða húsbíll eða hústjald er ekki  til staðar þá er eins og fólki finnist það ekki geta látið sjá sig.

AÐ sjálfsögðu veit ég vel að þetta er ekki algilt haha, og ábyggilega flestir eins og ég og þú sem hlúnkast bara áfram eins og þeim sýnist, í röndóttum sokkum, blómóttum buxum, röndóttum kjól og með sokkana yfir. … plús lopapeysan.

Það lítur bara út fyrir, það fólk sem ég sé svona á götum úti í Reykjavík, er í svo miklum búnaði að það hálfa væri nóg. Nóg um það.

Við erum búin að hafa það alveg ruglgott undir verndarvæng vorra foreldra, sama hvar við stígum niður. Verst er þetta með íbúðina, en ég trúi því að það muni koma að því að við fáum íbúð. Krossa fingur fyrir okkur og líka frænku mína í sömu stöðu (veit einhver um íbúð í Mos?).

Fórum svo í sundlaugina í morgun. Æði. Ég hreint og beint elska að getað farið í sundlaugar almennilegar. Og sturturnar eru æði líka. Á blússandi brúsi frá því að ég skrúfa frá þeim og þar til ég skrúfa fyrir.

Draumahúsið er með stórum garði, gróðurhúsi (var ég búin að nefna það..??), heitum potti og einhverjum skúr. Svo stórum garði að ég sá strax fyrir mér kál og kartöflugarðinn OG fótboltavöllinn.Það er fullkomið fyrir okkur. FULLKOMIÐ.

Allir að Secreta með mér :)

FORTÍÐARÞRÁ

Held ég sé haldin fortíðar þrá. Eins og ég ætti einhvern ókláraðan bisness í Vesturbænum. Allaveg er það þannig að ég er ekkert að finna neina íbúð þar. Ekki get ég sagt að ég sé ekki að finna íbúð þar sem passar því það eru bara engar íbúðir sjáanlegar á netinu á þessu svæði til leigu. Verulega dauður leigumarkaður. Er að hugsa um að búa til leigumiðlunarsíðu, svipaða og hægt er að finna í Dk.

Ég held ég sé haldin fortíðar þrá í Vesturbæinn, því ég er búin að finna draumahúsnæðið á Langholtsveginum!

Elsku Alheimur. Plíííís.