Litla dananum kennd íslenska
Ég: Viltu horfa á Hvolpasveitina ?
Daninn: Já! Klobbasveitina!!
Ég: Viltu horfa á Hvolpasveitina ?
Daninn: Já! Klobbasveitina!!
Litli Herforinginn að sprullast úr spenningi yfir því að hafa falið sig í gallabuxnunum í karladeildinni í HM í gær. Eiginmaðurinn að máta og ég að dæma og hún var ekki að fást til að vera kjur. Blessað barnið..
Hér er allt í kössum. Allstaðar. Hitt og þetta dót að dúkka uppúr skúffum, undan skápum, hillum
Við erum að gera dauðaleit að græna legókubba traktórnum sem passar við rauðu kerruna sem er komin í leitirnar. Hún hafði hann á milli handanna, í næstu viku. Skilur ekkert í þessu.
sagði Bína þegar hún lýsti því yfir að þegar hún yrði stórasystir að þá gæti hún líka verið fullorðin og farið í vinnuna eins og Gummi var að gera þennan dag.
Ég spurði hvenær hún yrði stórasystir (meðan það hlakkaði í mér yfir því að það mun aldrei… ALDREI gerast)
Hún svaraði: “þegar ég er búin að borða