Get ekki skrifað neitt því Freydís stakk uppá því að ég myndi setja upp stöðu garn-birgða og hvernig gengur á staflann.

Ég er búin að telja allt og setja upp í töflur, fór í það sama dag og hún stakk uppá því (reyndar svo góð hugmynd og svo svalandi að ég fór í það um leið og ég sá kommentið frá henni) en er ekki að finna bestu leið í heimi til þess að sýna hvernig það gengur á og kannski í hvað hver plata, hnykill, dokka eða hanki fer í.

Þar hefurðu það. Það hefur ekki heyrst í mér síðan Missjón Possibúl og mun ekki heyrast í mér fyrr en ég hef fundið bestu lausn í heimi.

Kveðjur

Skrítin, Fullkomnunaristi og íbítari.