VETTLINGASTÆRÐIR
Þó svo að margir heklarar og prjónarar virðist vera gæddir sjöunda skilningarvitinu (garnvitinu?) og geti framleitt bæði vettlinga og sokka þannig að passi fullkomið þá getur verið gott fyrir okkur hin að hafa stærðatöflu til hliðsjónar þegar við ákvörðum í hvaða málum vettlingar eiga að vera.
Hér fara því töflur yfir mál vettlinga.
Ummálið er mælt í kringum sverasta part lófans (fyrir ofan þumal), lengdin er mæld frá rót lófans við úlnlið og upp á fingurgóm á lengsta fingri og þumallinn er mældur frá krikanum milli þumals og vísifingurs og uppá fingurgóm þumals.
Þessar upplýsingar er líka að finna á vef Vatnsnes yarn, þar sem ég sel handlitað garn.
Barnastærðir
STÆRÐ | UMMÁL | LENGD | ÞUMALL |
---|---|---|---|
1 – 3 ára | 13 cm | 17 cm | 5 cm |
S | 15 cm | 19 cm | 5,5 cm |
M | 16,5 cm | 21,5 cm | 6 – 6,5 cm |
Kvenmannsstærðir
STÆRÐ | UMMÁL | LENGD | ÞUMALL |
---|---|---|---|
XS | 14 cm | 15 cm | 6 – 6,5 cm |
S | 16,5 cm | 16,5 cm | 7 cm |
M | 19 cm | 18 cm | 7,5 cm |
L | 21,5 cm | 19 cm | 7,5 cm |
XL | 24 cm | 21,5 cm | 8 cm |
Karlmannsstærðir
STÆRÐ | UMMÁL | LENGD | ÞUMALL |
---|---|---|---|
XS | 16,5 cm | 16,5 cm | 7 cm |
S | 19 cm | 18 cm | 7,5 cm |
M | 21,5 cm | 19 cm | 7,5 cm |
L | 24 cm | 20 cm | 8 cm |
XL | 26,5 cm | 21,5 cm | 9 cm |
Sæl. Takk fyrir þessa töflu.
Getur verið að það sé prentvilla í lengd barnavettlinganna – eða er þar verið að mæla lengd með stroffi?
góð kveðja,
Anna G Eiríksdóttir