Stjörnu-skeljahekl
Lykkjur í mynstrinu.
kl = keðjulykkja
ll = loftlykkja
fp = fastapinni (sumstaðar kallað fastalykkja)
st = stuðull
ll-bil = loftlykkju bil
Sth3. = Stuðlahópur, hér 3 st saman. Hekla 3 opna stuðla, einn í hvern st fyrri umferðar, og draga svo bandið í gegnum allar lykkjur á nálinni.
Sth6 = Stuðlahópur, hér 6 saman. Hekla 6 opna stuðla, einn í hvern st fyrri umferðar og draga svo bandið í gegnum allar lykkjur á nálinni. Sleppa fp í miðjunni.
Til þess að byrja stykkið, hvort það er teppi eða tuska eins og í þessum leiðbeiningum heklið þá ll í margfeldinu 8 og bætið einni lykkju við. Td. 8 x 10 = 80 + 1 = 81 lykkja.
Byrjunar umferð:
1. Umferð: 3 ll, sleppa fyrsta fp, Sth3 yfir næstu þrjá st, * 7 ll, sleppa 1 ll, St6.h yfir 6 næstu st, (muna að sleppa fp í miðju)* endurtaka frá * – *, enda með að gera 7 ll, sleppa fp, St3.h yfir næstu þrjá st, st í fyrstu ll (af ll fyrri umferðar), snúa.
2. Umferð: 3 ll, sleppa fyrsta st, 3 st í toppinn á Sth3, * fp utan um loftlykkjuröðina, í næsta ll-bil þar síðustu umferðar, [ 3 st, 1 ll, 3 st ] í toppinn á Sth6* -endurtaka frá * – *. Enda með að gera fp utan um loftlykkjuröðina, í næsta ll-bil þar síðustu umferðar, 3 st í toppinn á Sth3, st í efstu ll , snúa.
3. Umferð: 4 ll, sleppa fyrsta st, * Sth6 yfir næstu 6 st (sleppa fp í miðju), 7 ll, sleppa ll *. Endurtaka frá * – *. Enda með að gera Sth6, 3 ll, fp í efstu ll, snúa.
4. Umferð: 4 ll, sleppa fyrsta * [ 3 st, 1 ll, 3 st ] í toppinn á næsta Sth6, fp utan um loftlykkjuröðina, í næsta ll-bil þar síðustu umferðar *. Endurtaka frá * – * . Enda með að gera [ 3 st, 1 ll, 3 st ] í toppinn á Sth6, fp í fyrstu ll (af 4 ll fyrri umferðar).
Endurtaka umferð 1 – 4 þar til lengd er náð.
Kantur: fp allan hringinn tvisvar.
Með myndskýringum :)
Byrjunar umferð: [3 st, 1 ll, 3 st] í 5. kl frá nál, sleppa 3 kl, fp í næstu kl, *sleppa 3 kl, [3 st, 1 ll, 3 st] í næstu kl, sleppa 3 kl, fp í næstu kl *. Endurtaka frá * – * út umferðina, snúa.
Ath: ef vill skipta um lit þá er t.d hægt að gera það svona:
1. Umferð: 3 ll, sleppa fyrsta fp, Sth3 yfir næstu þrjá st, * 7 ll, sleppa 1 ll, St6.h yfir 6 næstu st, (muna að sleppa fp í miðju)* endurtaka frá * – *, enda með að gera 7 ll, sleppa fp, St3.h yfir næstu þrjá st, st í fyrstu ll (af ll fyrri umferðar), snúa.
2. Umferð: 3 ll, sleppa fyrsta st, 3 st í toppinn á Sth3, * fp utan um loftlykkjuröðina, í næsta ll-bil þar síðustu umferðar, [ 3 st, 1 ll, 3 st ] í toppinn á Sth6* -endurtaka frá * – *. Enda með að gera fp utan um loftlykkjuröðina, í næsta ll-bil þar síðustu umferðar, 3 st í toppinn á Sth3, st í efstu ll , snúa.
Uppistaðan í mynstrinu er upplýst í umferð 1 og 2, aðeins upphaf og endir umferða eru mismunandi.
3. Umferð:
4. umferð
Tuskan þvegin og lögð til. Get ekki ákveðið hinsvegar hvort ég vil nota þetta stykki sem tusku eða bara þvottapoka.
Í stykkið notaði ég nál nr. 4 og Mandarin Classic bómull. Ég hef gert teppi með stjörnuhekli og þar notaði ég líka nál nr. 4 og svo kambgarn.
Bara alveg ekkert að þakka :)
Frábært, ég skyldi aldrei Ensku heklu uppskriftir ég bý í USA…. þúsund þakkir.
Takk fyrir þessar leiðbeiningar, mig langar að prófa mig áfram!