Það er ekki lítið sem ég er búin að baula um hvernig veður er alla daga hér. Skemmst er frá því að segja að það er obbbossslega gott veður þessa dagana. Það er sól og heitt og heitt og sól…og svo smá rigning, bara rétt svona til að koma rykinu niður á jörðina. Pabbi minn er búinn að vera í heimsókn og það var dásamlegt. Við særðum út hjól hjá blessuðum grönnu grönnunum í AHG og erum búin að hjóla um víðan völl.
019
Ég veit nú svosem ekkert hvað þessi kerling var að troða sér með okkur í hjólaferð…við þekkjum hana ekki neitt. En þarna eru allavega Bóndinn með buru í kassa og pabbi að hjóla í skóginum hinum megin við Artillerivej (þar sem húsin eru í jaðrinum á, sbr.póstinn fyrir neðan).
034

Við fórum á svæði á Amager sem var með hellign af pínulitlum húsum sem voru svo sæt, sum með vel hirtum garði en önnur með algerum ofgróðri. Þarna voru blóm af ýmsustu tagi, eplatré, perutré og plómutré sem við rændum af tveimur grjóthörðum óætum plómum.

035

Þarna var alskonar skemmtilegt, t.d þetta útiljós. Það er pera í græna blómapottinum og svo mætti setja hvað sem er í hvíta pottinn.

P8100033

Ég fékk Gumma til að taka myndir yfir hekkið af japönskum garði sem þarna lá og ég ekki sá…

Allt er fínt að frétta annars. Eftir frábæra daga með afa í heimsókn þá tekur við hversdagsleikinn en hann er ekkert verri. Nú halda Gummi og Sunneva áfram að dóta sér á leikSkólunum. Gummi kemur ævinlega rennblautur heim. Í góðu veðri er kveikt á úðara og vatn fyllir uppí dæld í malbikinu. Þar er buslað á brókinni og haft mjög gaman að. Sunneva er jafn þakin sandi og Gummi vatni…hjá henni er ævintýralegur leikvöllur og fór hún í sína fyrstu ferð, svo kallaðan tur, með leikskólanum. Það var bátsferð á einhverju síkinu sem hér eru. Vonandi halda allir dagar áfram að vera góðir hjá okkur eins og þeir sem hafa liðið hér í Köben. Vonandi verða þeir líka góðir hjá yður kæri aðdáandi.