OK, krakkar! Hvernig er það eiginlega með sumarveðrið hér í Kóngsins köben? Ekkert að gerast! Alveg heitt og svona, en ekki nein sól og ekkert tækifæri til að skrópa í hversdeginum og hanga á ströndinni. Kannski sem betur fer því ég hef skú da nóg að gera.. en samt.. að væri mjög næs að liggja smá, kannski bara klukkara, þarf ekki meira, á ströndinni í hitanum við sjóinn og láta sig dreyma.

Ég get ekki skrifað meira þar sem ég er önnum kafin við að finna nafn á fyrirtækið mitt. Já, er ss að stofna sjálfstætt fyrirtæki (hætt að vera einyrki) fyrir mig sem vefhönnuð og get ekki fundið nafn .. alveg lokuð.

Ég vil að nafnið sé enskt. Ég tek á móti tillögum :)