2008-Hitt FíbbliðHitt Fíbbblið??? Hvað meinar liðið?? Jú það var þannig að Bóndinn gerði heiðarlega tilraun til að heilaþvo börnin með því að hrópa yfir þau “hver er foringinn”… og þau, æstur múgurinn, gargaði til baka…”maMMaaaaaaaaaaaa” að þau fóru að telja upp hvað þau sjálf væru, svona í tengslum við hver væri foringinn, Gvendi sagðist vera Prinsinn og Sunneva gólaði að hún væri Hitt Fíbblið, sem átti náttúrulega að vera Hirðfíflið, en hún var bara 3ára svo hún gat ekki borði það öðruvísi fram, skemmst er frá því að segja að við pissuðum í okkur af hlátri, hún heitir sem sagt Sunneva Eldey. Það er hennar nafn… er ekki merkilegt hvað maður getur valið nafn á börn og kemur í ljós að persónuleiki þeirra passar afar vel við nafnið…hólímólí, ætli það fari eftir því hvernig þau verða sem persónur hvað við nefnum þau??? Hvað veit maður.. ég efast um að við hefðum skírt hana Eldey..heheNafnið Sunneva er flottasta nafnið að okkur fannst í nafnabókinni og Bóndinn ákvað að hún myndi heita Eldey líka. Það fer henni súper vel. Hún hét reyndar lengi vel Kristófer, enda héldum við líka að við ættum tvo stráka en ekki strák og stelpu. Hún hefur núna í síðustu tíð skilið við Kristófer (hvaðan kom það nafn eiginlega) og sagt velkomin við Sunnevu sem elskar Bratz, tússliti, pils, bleikan og dúkkur.
Hún er svo heppin að búa yfir brjáluðu magni af krafti, við þurfum að finna út úr því að beina honum á heppilega braut..hoho
Takk fyrir símatalið í dag, elsku Sunneva mín. Elska þig.
Til hamingju með afmælið, elsku Sunneva mín. Vona að afmælisdagurinn sé þér ánægjulegur og framtíðin björt!
ástarkveðja,
amma Ragna
Hæ, hæ, hæ!
Hver á afmæli eftir 7 daga??? HVað langar þig í afmælisgjöf, Sunneva mín?
ástarkveðja,
amma ragna