STUÐULL

Skammstafanir

  • Ísl – Stuðull (st) 
  • US – Double crochet (dc) 
  • UK – Treble crochet (tr)
  • DK/NO – Stang maske (sm) / Stav (st) 

Stuðull er heklaður þannig: bandinu er slegið uppá nálina og henni stungið í lykkju, þá er bandið sótt og dregið í gegnum lykkjuna sem stungið var í, þá eru þrjár lykkjur á nálinni. Bandið er sótt aftur og dregið í gegnum tvær fyrstu lykkjurnar á nálinni, þá eru tvær lykkjur á nálinni. Bandið sótt aftur og dregið í gegnum síðustu tvær lykkjur á nálinni.

Leiðbeiningar um hvernig á að hekla stuðul

Bandinu er slegið uppá nálina og henni stungið í fjórðu lykkju. Þessar þrjár á milli lykkjunnar á nálinni og þeirrar sem stungið var í eru snúningslykkjur / upphafslykkjur.

Leiðbeiningar um hvernig á að hekla stuðul

Draga bandið upp í gegn um lykkjuna sem stungið var í.

Leiðbeiningar um hvernig á að hekla stuðul

Bandið sótt og dregið í gegnum tvær fyrstu lykkjurnar á nálinni.

Leiðbeiningar um hvernig á að hekla stuðul

Bandið sótt aftur og dregið í gegnum síðustu tvær á nálinni.

Leiðbeiningar um hvernig á að hekla stuðul

Stuðull heklaður. Næsti stuðull kæmi t.d í næstu lykkju.